ESS gengið

15.07.2007 22:18:07 / ess2007

ESS hittingur??

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður enginn hittingur í Júlí. En við nöfnur Ollurnar, ætlum vestur á Bolungarvík 15-20. ágúst (þegar gamla vaktin okkar, sem við vorum á eru í fríi) og við vorum þá að pæla í að hittast þá bara ef fólk hefur áhuga, þá er nægur tími til stefnu. Endilega segið ykkar skoðun.. ég ætla svo aftur að senda út slóðina, það eru víst einhverjir sem fengu aldrei að vita það:haha:

Bestu kveðjur frá  Akureyri


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 17:35:03 / ess2007

Hvíl í friði

 

† Agatha Sesselja Sigurðardóttir †

 

Agatha Sesselja Sigurðardóttir

Agatha Sesselja Sigurðardóttir fæddist að Hraungerði í Flóa 29. september 1953. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 15. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Stefanía Gissurardóttir og Sigurður Pálsson vígslubiskup. Tveggja ára fluttist hún með foreldrum sínum á Selfoss og ólst þar upp. Hún var yngst sjö systkina, sem eru Páll, Ólafur, Ingibjörg, Ingveldur, Sigurður og Gissur.

Árið 1978 gekk Agatha að eiga Jóhann Baldur Jónsson, verslunarmann á Blönduósi. Þau eignuðust þrjár dætur: Jóhönnu, f. 1979, í sambúð með Jóhanni Kröyer, sonur þeirra er Bjarki Kröyer. Stefaníu Ellý, f. 1980, í sambúð með Guðna Karli Brynjólfssyni, börn þeirra eru Kristófer Karl og Júlía Marín. Yngst þeirra er Sigrún, f. 1988. Jóhann og Agatha slitu samvistum.

Að loknu grunnskólanámi varð Agatha skiptinemi í Los Altos í Kaliforníu í eitt ár og aupair í annað ár í Bandaríkjunum. Hún starfaði um skeið í Seðlabankanum og fór þaðan í Húsmæðraskólann á Löngumýri. Árið 1975 til 1977 stundaði hún nám í Ljósmæðraskólanum. Skömmu eftir útskrift þaðan flutti hún á Blönduós og var þar ljósmóðir í 19 ár. Eftir það var hún ljósmóðir á Ísafirði í fjögur ár og fór síðan til starfa á kvennadeild Landspítalans. Seinasta æviárið starfaði hún hjá ESS á Reyðarfirði.

Útför Agöthu var gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

Tekið af mbl.is


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:48:13 / ess2007

Jæjaa

Jæja mín kæru, fyrir ykkur örfáu sem lesa þetta:) Við höfum ákveðið að reyna að hittast í Júlí, annaðhvort helgina 20-22 eða 27-29 júlí. Heiða ætlar að athuga hvort pabbi hennar gæti reddað okkur bústað og nú er bara að bíða og sjá hvað gerist. Annars er það bara tjaldútileiga:haha:

Hvað er að frétta af ykkur, eruði bara död??8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 09:34:35 / ess2007

Sæl

Jæja, ég er búin að sitja inn nýja skoðunarkönnun og vonandi taka sem flestir þátt. Ef ekki þá verðum við bara að velja helgi og svoleiðis. Þetta er semsagt frá fös-sun en auðvitað er hægt að lengja ef áhugi er fyrir hendi.

Eitt enn, ef fólk vill tjá sig hér og skrifa eitthvað þá er það minnsta málið, bara senda póst á olofkr@mi.is

Veriði svo duglegri við að tjá ykkur8) Hvar er Heiða? :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 15:21:57 / ess2007

Sælt verið fólkið!

Jæja, komið er í umræðuna tveir staðir;

Sandgerði og Skagafjörðurinn. Við verðum bráðum að fara að vita eitthvað með fjölda og svona þannig að hægt sé að plana eitthvað í tíma:) Þannig að endilega fólk, staðfestið þáttöku ykkar, ég ætla að búa til lista svo yfir þá sem eru staðfastir í að mæta. Einnig verðum við að velja mánuð og helgi. Verum svo dugleg að dreifa síðunni til þeirra sem við höldum að hafi ekki slóðina:)

Endilega tjáið ykkur áfram:haha:

Kveðja, Ólöf


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 22:09:08 / ess2007

Sælar!

Sæl og blessuð! Við höfum opnað þessa síðu vegna þess að það hefur vottað fyrir áhuga á að hittast í sumar og eiga saman góða helgi. Nú viljum við heyra hugmyndir ykkar og hvernig þetta leggst í ykkur. Þetta fyrirkomulag er ódýrara heldur en að hringja í hvert annað og senda sms, þannig að við vonum innilega eftir að heyra í sem flestum og heyra hugmyndir frá ykkur.

Með kveðju fyrir hönd gengisins,

Ólöfarnar:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 21:34:11 / ess2007

Velkomin/nn á BlogCentral

Þetta er fyrsta færslan þín á BlogCentral. Til að eyða henni eða breyta notar þú umsjónarvefinn sem þú kemst inná með því að smella á "Vefstjórn" hér í valmyndinni vinstra megin.

Inni í vefstjórninni getur þú skrifað nýjar færslur, breytt færslum eða eytt þeim.
Sama gildir um gestabók þar sem þú getur eytt færslum úr henni og haft yfirsýn yfir um leið þá sem skrifa í þína gestabók

Viljir þú hafa tengla á aðrar heimasíður getur þú auðveldlega bætt þeim við undir "Tenglar" í vefstjórninni.

Til að breyta útliti síðunnar og nota þau útlit sem eru í boði smellirðu á "Stillingar á síðu" sem finna má neðarlega í valmyndinni vinstra megin.

Viljir þú bæta við bloggurum á síðuna þína til að geta skráð sig sömuleiðis inná síðuna þína, þá ferðu í "Notendur" neðst í valmyndinni vinstra megin.

Undir aukahlutir getur þú bætt hinum ýmsu hlutum inná síðuna eins og t.d. niðurteljara, leit, dagatal og fleira.
Gangi þér vel að blogga,

Besti kveðjur, BlogCentral

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill